Forvarnardagurinn
Í dag var forvarnardagur í grunnskólum landsins, unglingarnir í Súðavíkurskóla tóku þátt eins og aðrir. Allir nemendur áttu að taka þrjú atriði til umræðu og hér koma umræðuefnin og svör nemenda í skólanum okkar. A) Hvað mynduð þið vilja gera oftar með fjölskyldum ykkar? Svör: Fara á veiðar, í tjaldferðir, sumarbúðaferðir, gönguferðir, tína ber og hafa bökunarkvöld. B) Hverjar telur þú vera helstu ástæður þess að krakkar taka þátt í skipulögðu íþrótta - og tómstundastarfi? Svör: Vegna áhuga, heilsufars og til að forða sér frá fíkniefnum. C) Hvað græðir þú á því að drekka ekki áfengi á unglingsárum? Svör: Þroskast betur bæði líkamlega og andlega.