mánudagurinn 23. mars 2009
Undirbúningur árshátíđar
Nú eru allir nemendur og kennarar á fullu við að undirbúa árshátíð skólans. Þema árshátíðarinnar er "´Sjómannslíf hér áður og fyrr" þar sem nemendur leika og syngja gömul sjómannalög.
Skemmtunin verður haldin í Samkomuhúsinu laugardaginn 28.mars n.k. kl. 14:00. Að henni lokinni býður foreldrafélagið upp á kaffi og meðlæti á sal skólans.
Aðgangseyrir er greiddur inn í skóla og er 1000.-kr fyrir 17 ára og eldri og 500.-kr fyrir börn 6 - 16 ára.
Leikskólabörn og eldriborgarar fá frítt inn.
Það er von okkar allra að sem flestir sjái sér fært að mæta og sjá þessa frábæru sýningu:)