miðvikudagurinn 28. september 2016

Árleg gróðursetning í Súðavíkurskóla

Lagt af stað í gróðursetningarferð.
Lagt af stað í gróðursetningarferð.
1 af 7

Föstudaginn 23. september gróðursettum við í Súðavíkurskóla tré í blíðskaparveðri. Í þetta sinn völdum við nýtt svæði rétt neðan við sístækkandi "skólaskóginn" því ætlunin er að stækka hann til austurs. Eins og venjulega settum við áburð í kringum nýgróðursett trén auk þess sem nemendur hlúðu að eldri trjám, rifu sinu frá þeim og settu áburð. Að því loknu fundu nemendur sín eigin tré, en öll eiga þau tré sem merkt eru með nöfnum barnanna. Vaninn er að mæla hæð trjánna árlega og athuga þannig ársvöxtinn. Þetta var góður og ánægjulegur útivistardagur eins og myndirnar bera með sér.

miðvikudagurinn 28. september 2016

Almennur foreldrafundur

Kæru foreldrar

 

Almennur foreldrafundur verður haldinn á sal skólans n.k. fimmtudag 29.sept klukkan 20:00

 

Allir velkomnir

 

Skólastjóri

þriðjudagurinn 23. ágúst 2016

Norræna skólahlaupið 2016

Á morgun miðvikudaginn 24.ágúst ætla nemendur Súðavíkurskóla að fara í Norræna skólahlaupið. Að þessu sinni fara nemendur 8.-9.bekk ásamt umsjónarkennara upp í ,,Skálina góðu,, áleiðis á Sauratinda með nesti og nýja skó:)

Yngri nemendur fara inn að Valagili, ásamt kennurum og einnig með nesti meðferðis.

Fleiri fréttir

Vefumsjón